Uppskeruhátíð Siglingasamband Íslands (SÍL) verður haldin í hádeginu laugardaginn 9. desember á Café Easy – Íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Boðið verður upp á jólahlaðborð á 2500 kr. Verðlaun verða veitt þeim sem hafa skarað framúr á árinu. Kjörið tækifæri fyrir siglinga- og kayakfólk til að hittast og eiga notalega stund. SÍL hvetur fólk til að koma með tilnefningar fyrir þá sem hafa skarað framúr í siglingum árið 2017.
Nánari upplýsingar má nálgast á hér.