Þytur óskar eftir að ráða þjálfar.

Þytur óskar eftir að ráða þjálfar.

Siglingaklúbburinn Þytur leitar þessa dagana af þjálfara til að sjá um þjálfun kænusiglinga hjá klúbbnum í vetur og sumar. Æfingar eru fyrirhugaðar eftir kl 17:00 á virkum dögum t.d  mið og fös, með möguleika á auka æfingum á laugardögum allt eftir samkomulagi við þjálfara. Umsóknir og spurningar óskast sendar á sailing@sailing.is Stjórn Siglingaklúbbsins Þyts

Opnunarmót kjölbáta 14.ágúst 2018 – Tilkynning um keppni (Frestað mót)

Opnunarmót kjölbáta 14.ágúst 2018 – Tilkynning um keppni (Frestað mót)

Opnunarmót kjölbáta sem fresta þurfti fyrr í sumar vegna veðurs verður haldið þriðjudaginn 14.ágúst næstkomandi. Íslandsmót kjölbáta verður haldið í Hafnarfirði dagana á eftir og er því kjörið fyrir þá sem ætla sér að taka þátt í Íslandsmótinu að nýta ferðina til Hafnarfjarðar og taka þátt á Opnunarmótinu. Tilkynningu um keppni má finna Hér

Lyklabreytingar að húsnæði

Lyklabreytingar að húsnæði

Kæru félagar Við vorum í þessu að setja upp nýtt lyklakerfi á útidyrahurðina hjá okkur og eru því gömlu lyklarnir orðnir óvirkir. Þeir félagar (18 ára og eldri) sem hafa greitt félagsgjöldin og vilja fá aðgangskort endilega sendið mér tölvupóst á sindrihannes@gmail.com þar sem kemur fram nafn, kennitala, símanúmer og lykilorð sem nota þarf með […]