Kjölbátadeild
Kjölbátanámskeið
Mánudaginn 1. júní höldum við næsta kjölbátanámskeið. Um er að ræða tvö námskeið sem haldin eru samtímis. Annars vegar er það námskeiðið „Hæfur háseti“ þar sem á sex dögum er farið í allt sem þarf að kunna og æfa til að vera liðtækur áhafnarmeðlimur um borð í Secret26 bátum Þyts. Hitt námskeiðið er sex daga … Read more
Fensborgarhöfn – Rammaskipulag.
Áður en aðalfundur Siglingaklúbbsins Þyts hefst sunnudaginn 2. febrúar verður Kristín María Thoroddsen formaður Hafnarstjórnar og formaður stýrihóps fyrir nýtt rammaskipulag Flensborgarhafnar með kynningu á rammaskipulagstillögunni fyrir félagsmenn Þyts. Kynningin hefst klukkan 13:30 í félagsheimili Siglingaklúbbsins Strandgötu 88.Aðalfundur hefst klukkan 14:00 samkvæmt dagskrá.
Aðalfundaboð
Aðalfundarboð Aðalfundur Siglingaklúbbsins Þyts verður haldinn sunnudaginn 2. febrúar klukkan 14:00 í félagsheimili klúbbsins Strandgötu 88. 4.7. Dagskrá aðalfundar. 4.7.1. Setning fundar. 4.7.2. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 4.7.3. Skýrsla stjórnar. 4.7.4. Reikningar lagðir fram áritaðir af skoðunarmönnum. 4.7.5. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. 4.7.6. Samþykkt skýrslu stjórnar og reikninga. 4.7.7. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun … Read more
Öryggisbátum fjölgað í 4 báta
Stjórn hefur fjárfest í nýjum öryggisbát fyrir barna- og unglingastarf þyts. Vonandi verður báturinn kominn í hús fyrir aðalfund.
Skýjaborg
Það er búið að vinna mikið í skýjaborg til að gera hana upp. En í gær var henni snúið við svo hægt verði að vinna í botni á henni en svo verður báturinn málaður.
Laugardagskaffi
Skútukaffi alla laugardaga frá 10:00 til 12:00. Allir velkomnir að koma og fá sér kaffi og spjalla.
SKÚTUBRYGGJA
Siglingaklúbburinn Þytur og Hafnarfjarðarhöfn hafa gert með sér afnota- og rekstrar samning á 55 metra skútubryggju. Samningurinn var undirritaður í morgun 9. desember 2019. Óskum við skútufólki til hamingju með samninginn.