Siglingaklúbburinn Þytur - Strandgötu 88 220 Hafnarfirði

Kjölbátanámskeið

Mánudaginn 1. júní höldum við næsta kjölbátanámskeið. Um er að ræða tvö námskeið sem haldin eru samtímis. Annars vegar er það námskeiðið „Hæfur háseti“ þar sem á sex dögum er farið í allt sem þarf að kunna og æfa til að vera liðtækur áhafnarmeðlimur um borð í Secret26 bátum Þyts. Hitt námskeiðið er sex daga námskeið sem miðar að því að undirbúa þáttakendur fyrir verklegt skemmtibátapróf sem hægt er að taka í framhaldinu á Secre26 báta Þyts. Þáttakendur geta verið fjórir til fimm í heild og er stefnt að því að siglt sé annan hvern dag en það er sveigjanlegt. Þáttökugjald er 40.000kr. Námskeiðið er í heild 28 tímar. Siglt er frá 18 til 22 á virkum dögum en gert er ráð fyrir einni 8 tíma siglingu um helgi þar sem skipulögð og sigld er lengri leið. Frekari upplýsingar fást hjá leiðbeinanda Markúsi Péturssyni í póstfangið Markús.Elvar@gmail.com eða í 841-0457.