Siglingaklúbburinn Þytur býður upp á siglinganámskeið fyrir börn og unglinga 10 ára og eldri, fædd 2014 og fyrr. Markmiðið er að gefa ungmennum tækifæri til að kynnast sjónum og hvernig við umgöngumst hann á öruggan hátt. Markmiðið er einnig að kynna íþróttina siglingar fyrir þátttakendum.
Þátttakendum er kennt að bregðast við síbreytilegum aðstæðum á sjó, siglinga á kayak og seglbátum, fylgja öryggis- og siglingareglum og umgengni um báta og búnað þeirra. Í lok námskeiðs gerum við okkur dagamun, hoppum i sjóinn, buslum og endum á grillveislu.
Hvert námskeið er ein vika hálfan daginn frá kl. 9:00 – 12:00 eða frá kl. 13:00 – 16:00. Kennt er í aðstöðu Þyts, Strandgötu 88 og við Hafnarfjarðarhöfn.
Námskeiðsgjaldið er 14.500kr nema vikuna 18. til 21. júní 11.600kr
Búnaður
Ætlast er til að Þátttakendur komi klæddir eftir veðri. Ekki er mælt með stígvélum heldur frekar gömlum strigaskóm meðan á námskeiði stendur. Nauðsynlegt er að hafa meðferðis auka föt, auka skó ásamt góðu handklæði og plastpoka utan um blaut föt. Að sjálfsögðu fá allir björgunarvesti til afnota á námskeiðunum enda algjört skilyrði að klæðast þeim þegar haldið er út á sjó.
Blautgalli er ekki nauðsynlegur en mjög hentugur. Hægt er að fá góða blautgalla, blautskó og hanska sem henta kænusiglingum hjá GG Sport (ggsport.is). Notuð siglingaföt er oft hægt að finna á facebook-hópnum „Notaður siglingabúnaður“
Nesti
Mælst er til þess að þátttakendur komi með nesti fyrir hvern dag. Í lok hvers námskeiðis verða grillaðar pulsur í boði Þyts.
Athugið!
Munið að merkja öll föt með nafni og síma eigenda sinna þar sem mikið hefur verið um að föt gleymist.