Siglingaklúbburinn Þytur - Strandgötu 88 220 Hafnarfirði

Aðalfundur Siglingaklúbbsins Þyts 2026

Kæru félagsmenn.

Aðalfundur Siglingaklúbbsins Þyts verður haldinn í aðstöðu félagsins, Strandgötu 88.

Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 15. febrúar klukkan 14:00.

Við hvetjum félagsmenn til að mæta, þiggja veitingar og heyra hvað fór fram árið 2025.

Dagskrá aðalfundar

1. Setning fundar.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Reikningar lagðir fram áritaðir af skoðunarmönnum.
5. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga.
6. Samþykkt skýrslu stjórnar og reikninga.
7. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
8. Lagabreytingar.
9. Aðrar tillögur sem liggja fyrir fundinum.
10. Kosning stjórnar samkvæmt grein 2.4.
11. Félagsgjald skal ákveðið.
12. Kosnir skoðunarmenn og einn til vara, samkvæmt grein 2.5.
13. Kosnir fulltrúar á þing SÍL.
14. Önnur mál.
15. Fundarslit.