Námskeiðið er 4 kvöld, þriðjudag 29. maí, miðvikudag 30.maí, þriðjudag 5. júní og miðvikudag 6. júní. Ef ekki viðrar til siglinga þessa daga verða fundnir aðrir dagar til að sigla í samráði við nemendur. Farið verður yfir efnið í bókinni Byrjað að sigla sem SÍL gaf út ásamt helstu atriðum sem tekin eru fyrir í verklegu prófi í skipstjórn skemmtibáta samkvæmt lista frá Siglingastofnun (sjá hér)
í lok námskeiðs eiga nemendur að kunna skil á helstu handtökum við að stjórna skútu.
Kennari verður Ragnar Hilmarsson sem hefur yfir 20 ára reynslu af skútusiglingum.
Verð 35.000 kr. Kennt verður á Secret 26. Að námskeiði loknu er hægt að fá skútuna lánaða til að taka verklegt próf fyrir skemmtibátaskírteini, fyrir þá sem þess óska. Hámarksfjöldi er 5 nemendur, lágmark 3.
Því miður er námskeiðið orðið fullt en hægt er að skrá sig á biðlista og verður haft samband ef eitthvað pláss losnar eða haldið verður annað námskeið.
Skráning á biðlistann er á namskeid@sailing.is. (Vinsamlegast hafið eftirfarandi upplýsingar með skráningu).
Nafn:
Kennitala:
Heimilisfang:
Vefpóstur:
Sími: