Aðalfundur 2023

Ágæti félagi

Aðalfundur Siglingaklúbbsins Þyts verður haldinn í aðstöðu félagsins Strandgötu 88.

Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 5. febrúar klukkan 14:00.

Við biðjum félagsmenn að fjölmenna og taka þátt í starfi félagsins.

Dagskrá aðalfundar

  1. Setning fundar.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla stjórnar.
  4. Reikningar lagðir fram áritaðir af skoðunarmönnum.
  5. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga.
  6. Samþykkt skýrslu stjórnar og reikninga.
  7. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
  8. Lagabreytingar.
  9. Aðrar tillögur sem liggja fyrir fundinum.
  10. Kosning stjórnar samkvæmt grein 2.4.
  11. Félagsgjald skal ákveðið.
  12. Kosnir skoðunarmenn og einn til vara, samkvæmt grein 2.5.
  13. Kosnir fulltrúar á þing SÍL.
  14. Önnur mál.
  15. Fundarslit.